Thursday, April 24, 2008

Fyrsta tvíhjólið

Gabríel fékk hjól með hjálpara dekkjum og hjálm í stíl, auðvitað er þetta Cars hjól og Cars hjálmur, það æði á seint eftir að dvala þar sem barnið er bíla sjúklingur. hér er hann í fyrstu hjólaferðinni sinni, rosa stoltur og montinn :)

Wednesday, April 9, 2008

Sofið í kassa




Gabríel spurði í gær hvort hann mætti sofa í kassanum undan nýju steikarpönnunni, ég sagði já því að kassinn er það lítill að ég hélt honum myndi ekki takast það og myndi gefast upp fljótlega, en neinei hann beið þolinmóður í kassanum með sængina sína þar til hann sofnaði :) bara sætt, hann rumskaði og skipti um stellingu en datt ekki í hug að færa sig inní rúm.

Tuesday, April 1, 2008

Kúrað saman



Páskamynd

Strákarnir fengu egg frá okkur á páskadag, Gabríel var ekki alveg að fatta að eggið hans væri týnt.... Adam fékk heitur/kaldur vísbendingar en Ísak fékk gátur sem leiddu að næstu gátu og svo framvegis.... hann þurfti smá aðstoð en þetta tókst á endanum. Strákarnir hafa alltaf bara fengið eitt páskaegg og það frá okkur, en þessa páska fengu þeir fá báðum ömmunum og eitt númer 3 frá okkur nokkrum dögum áður þar sem að ég átti nokkur sem fylgdu frítt með kókkippu, ég veit ég er kókisti.

Hér fylgir mynd af þeim á páskadagsmorgun.