Thursday, June 12, 2008

Baðherbergið


Erum í þessu skrifuðu orðum að taka flísarnar af baðherberginu , þetta var svo illa gert hjá þessu fí**um að það eru ekki til nógu mörg orð til þess að lýsa því, þarf vart að taka það fram að þeir voru reknir, en það er samt einn kostur við það að þetta var svona illa gert, flísarnar hreinlega duttu af í heilu lagi með engu lími aftaná þeim eða neitt (það brotnuðu örfáar flísar), þurfum ekki að hreinsa flísarnar eða neitt, getum bara skellt þeim upp aftur, en allt límið í tonnavís (ok kannski pínu ýkt) er á veggnum, límið á veggnum er 1 og hálfur til 2 cm og þarna í gluggakistunni er 3-4 cm ákvað að setja hérna inn mynd af öllu líminu.

Það er hægt að klikka á myndirnar til að stækka þær og sjá betur en límið er svo svakalega mikið að ég held að stækkun sé óþarfi. gifsveggurinn er ónýtur, við erum búin að rífa ytri plöturnar af, þær innri eru í lagi og óli er í þessum skrifuðum orðum að höggva límið af steinveggnum, en við sjáum allavega fyrir endann á þessu núna....

En sem betur fer borguðum við þessum gaurum ekki, þeir ætluðu að rukka okkur 200.000 fyrir að eyðileggja baðherbergið og við vorum hörð á því að þeir fengju ekki krónu, þetta fór í intrum í innheimtu en að lokum eftir að matsmaður var búinn að kíkja á þetta, þá felldu þeir skuldina niður :)enda er ég sko ekki að fara að borga fyrir svona hræðilega vinnu, upphaflega voru þeir nú reknir vegna þess að þeir gerðu allt rangt sem hægt var að gera rangt, þeir settu upp brotnar flísar, byrjuðu á vitlausum stað, þeim var greinilega alveg sama hvernig þetta liti út á endanum og sögðu þegar við kvörtuðum að öll þessi brot og göt myndu bara hverfa á fúguna, verð að skella einni svoleiðis mynd með líka. vá ég á svo margar myndir af öllum þessum mistökum að ég gæti sett inn allavega 20 myndir og ræðan væri endalaus, læt þetta bara nægja í bili allavega :)